9 myndir
Við notuðum hvítu kassana frá fyrri útgáfu búrsins og smíðuðum viðar kassa utanum til að minka drasl sem datt útfyrir búrið.
9 myndir
Við notuðum hvítu kassana frá fyrri útgáfu búrsins og smíðuðum viðar kassa utanum til að minka drasl sem datt útfyrir búrið.
8 myndir
Eftir að við fluttum í okkar eigin íbúð fórum við að smíða nýja naggrísabúrið. Girðingarnar fékk ég í gæludýr.is búðinni. Það er óþarfi að hafa búrið hærra en þær nema þú hafir svakalegan grallara Botninn er gerður úr coro-plasti sem ég fann hjá auglýsingastofunni áberandi. Þetta eru tveir kassar (þessi með lægri kantinum var eins stór og ég gat búið til úr einni plötu, hefði þurft að líma tvær saman til að gera stærri botn) Svarti listinn sem ég setti á alla kantana fékk ég í Bauhaus, hann kemur í veg fyrir að naggrísirnir nagi hvíta kassann (það er ekki auðvelt að koma honum á þegar listinn er í lengri kantinum, svaka puð). Ættir að setja þessa lista á áður en þú festir upp hliðarnar. Efri-hæðin er alveg fjarlægjanleg, bara fest saman við búrið á endunum svo það fari ekki neitt. En vegna lengdarinnar þá þurfti ég að setja burðarstaur í miðjuna
3 myndir
Fyrsta sérhannaða búrið þeirra, búið til úr coro-plast spjaldi sem ég fékk í hendurnar af tilvlijun. Þurftum búr sem var ekki alltaf á gólfinu (þröngt í herbekinu þá).
Ég notaði part af upprunalega búrinu þeirra til að búa til efri hæðina þarna.
3 myndir
Þetta var fyrsta stóra búrið þeirra, þær voru svo ánægðar að fá stærra svæði til að leika sér á.
Búrið er einfaldlega tvö sett af naggdýra girðingum og nælóngólfdúkur sem festist við girðinguna með frönskum rennilsási. Fékk mitt frá gæludýr.is og vatnsflaskan helst uppi með eldhúsrúllu-standi sem ég keypti í Tiger